Dómhildur Þorsteinsdóttir fæddist 2. júní, 1887 í V. Skaftafellssýslu. Dáin í höfninni í New York, grafin í Spanish Fork. Dómhildur fór vestur með foreldrum sínum Þorsteini Péturssyni og Sigríði Eiríksdóttur árið 1887 en var látin þegar landi var náð vestra.
Dómhildur Jónsdóttir
Dómhildur Jónsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 2. október, 1877. Maki: 1904 Þorsteinn Ingimundarson f. 23. ágúst, 1874, d. 16. desember, 1943. Dómhildur flutti vestur til Kanada árið 1902 en Þorsteinn fór vestur 1900. Þau bjuggu seinast í Vancouver í Bresku Kolumbíu.
Katrín Guðjónsdóttir
Katrín Guðjónsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 15. ágúst, 1887. Katrín fór vestur til Manitoba í Kanada árið 1902. Faðir hennar, Guðjón Ingimundarson flutti vestur þangað árið 1892. Sigurður, bróðir hans fór vestur 1902 og má gera ráð fyrir að hann og Katrín hafi verið samferða.
Árni Sigurðsson
Árni Sigurðsson fæddist 24. nóvember, 1871. Dáinn 7. janúar, 1961. Maki: 2. nóvember, 1900 Guðrún Bergsteinsdóttir f. 17.febrúar, 1875. Dáin 22.maí, 1942. Börn: 1. Margrét Árnadóttir f. 30. maí, 1901, d. 8. maí, 1930. Fluttu vestur frá Vestmannaeyjum árið 1904 og fóru til Manitoba í Kanada. Bjuggu í Selkirk.
Guðrún Bergsteinsdóttir
Margrét Árnadóttir
Gísli J Einarsson
Gísli Jóhann Einarsson fæddist í Vestmannaeyjum 17. febrúar, 1886. Dáinn 1. júlí, 1898 í Spanish Fork í Utah. Ókvæntur og barnlaus. Fór vestur til Utah með móður sinni, Steinvöru Lárusdóttur árið 1892 en faðir hans, Einar Bjarnason fór þangað árið áður. Þau bjuggu í Spanish Fork.
Kristín I Einarsdóttir
Kristín Ingunn Einarsdóttir fæddist 17. júní, 1889 í Vestmannaeyjum. Ókvænt og barnlaus. Hún flutti vestur með foreldrum sínum, Einari Bjarnasyni og Steinvöru Lárusdóttur til Spanish Fork í Utah. Flutti eftir aldamótin með þeim til Blaine í Washington.
Lárus E Einarsson
Lárus Einar Einarsson fæddist í Vestmannaeyjum 27. október, 1891. Dáinn í Spanish Fork í Utah 31. desember, 1892. Ókvæntur og barnlaus. Hann fór vestur til Utah árið 1892 með móður sinni, Steinvöru Lárusdóttur og syskinum. Faðir Hans, Einar Bjarnason fór þangað ári fyrr.
Jóhanna Lárusdóttir
Jóhanna Lárusdóttir f. í Vestmannaeyjum 23. september, 1868, d. 8. desember, 1953. Maki: Árni Árnason fæddist í Vestmannaeyjum 15.júlí, 1870. Dáinn 18.janúar, 1924. Börn: 1. Auðbjörg f. 1892, d. 1895 2. Bergþóra Ástrós f. 1898 3. Árni f. 1901 4. Guðfinna f. 1903. Fluttu vestur frá Vestmannaeyjum til Spanish Fork árið 1892. Undu ekki hag sínum vestra og sneru heim til …
