Arnór Thorberg fæddist í Húnavatnssýslu árið 1862. Maki: Ágústa Halldóra Sigurðardóttir f. í Skagafjarðarsýlu 14. október, 1853. Arnór flutti einsamall vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1884. Ekki er vitað hversu lengi hann bjó þar en hann og Ágústa gengu í hjónaband vestur í Alberta og bjuggu þar.
Hannes Skarphéðinsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Margrét Árnadóttir
Margrét Árnadóttir fæddist í Rangárvallasýslu. Ógift og barnlaus Flutti vestur með Hans C Cobb og fjölskyldu hans til Marklands í Nova Scotia árið 1878.
Jón G Borgfjörð
Jón Gíslason Borgfjörð fæddist í Mýrasýslu árið 1840. Maki: Oddrún Samúelsdóttir f. í Gullbringusýslu árið 1841. Börn: 1. Árni Einar f. 1867. Þau fluttu vestur til Marklands í Nova Scotia árið 1878 og bjuggu í Lundi.
Oddrún Borgfjörð
Árni Einar Borgfjörð
Lárus Þórðarson
Lárus Frímann Þórðarson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1843. Ókvæntur og barnlaus Hann fór vestur í Markland í Nova Scotia árið 1878. Var ráðinn vinnumaður hjá kanadískri ekkju í Musquodoboit dal sem hann svo kvæntist.
Guðrún G Ahrens
Guðrún Guðlaugsdóttir fæddist í Gullbringusýslu árið 1824. Maki: Georg Ahrens af þýskum ættum d. á Íslandi um 1860. Börn: 1. Lovísa Hendriette f. 1850 2. Jóhanna María f. 1858. Guðrún átti dótturina Jósefínu Jósefsdóttur árið 1862. Guðrún fór með Jósefínu vestur í Markland í Nova Scotia árið 1878. Jóhanna María fór vestur árið 1880.
