Sigurður Sigurðsson
Sigurður Sigurðsson fæddist á Vatnsleysuströnd í Gullbringusýslu árið 1878. Maki: Guðrún Helga Magnúsdóttir f. 5. júní, 1878 í Vestmannaeyjum. Sigurður fór vestur um haf með föður sínum, Sigurði Andréssyni. Móðir hans var Guðrún Eiríksdóttir. Sigurður ólst upp hjá föður sínum og konu hans Ólínu og flutti með þeim í Pine Valley byggð. Guðrún fór vestur eftir 1910.
