Jón Brynjólfsson fæddist í Rosseau í Ontario árið 1876. Dáinn árið 1964 í Saskatchewan. J. B. Johnson vestra. Maki: Jóhanna María Sigurjónsdóttir f. árið 1884 í N. Múlasýslu. Börn: 1. Helgi 2. Guðrún 3. Sigurveig 4. Jóhanna. Jón flutti með foreldrum sínum, Brynjólfi Jónssyni og Guðrúnu Jónsdóttur og bræðrum frá Rosseau til Mountain í N. Dakota árið 1884 og þaðan …
Kristinn Brynjólfsson
Kristinn Brynjólfsson fæddist í Rosseau í Ontario. Kristinn B. Johnson eða Chris Johnson vestra Kristinn flutti frá Rosseau með foreldrum sínum, Brynjólfi Jónssyni og konu hans Guðrúnu Jónsdóttur árið 1884 til Mountain í N. Dakota. Þar bjó hann til ársins 1904 en þá fór hann í Vatnabyggð í Saskatchewan ásamt foreldrum sínum og bræðrum. Hann nam land í Wynyardbyggð og …
Jón L. Jónsson
Jón Leví Jónsson fæddist árið 1889 í Minnesota. Dáinn árið 1944. John L Reykdal vestra. Maki: Lilja Sigurjónsdóttir f. í N. Dakota árið 1887. Jón ólst upp í Minnesota, flutti með foreldrum sínum, Jóni Gíslasyni og Ragnhildi Friðriku Jónsdóttur, vestur í Washingtonríki og í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905. Þar nam hann land nálægt Wynyard og bjó þar.
Helgi E Jónsson
Helgi Elías Jónsson fæddist 13. mars, 1887 í Lyon byggð í Minnesota. Dáinn árið 1970 í Mountain, N. Dakota. Henry Johnson eða H. E. Reykdal vestra Ókvæntur og barnlaus. Helgi ólst upp hjá foreldrum sínum, Jóni Gíslasyni og Þóru Halldórsdóttir, í Minnesota og flutti með þeim vestur að Kyrrahafi og í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann nam þar land en flutti …
Helgi Helgason
Helgi Helgason fæddist 23. janúar, 1848 í Reykjavík í Gullbringusýslu. Dáinn á Íslandi 14. desember, 1922. Maki: ókvæntur Barn: 1. Sigurður Helgi flutti vestur árið 1902 og mun hafa farið vestur að Kyrrahafi. Hann vann við tónlist en flutti í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og nam þar land skammt frá bænum Wynyard. Seldi landið árið 1916 og flutti heim …
Bernharður Jónsson
Bernharður Jónsson fæddist í Mosfellssveit í Kjósarsýslu árið 1857. Bernhard Johnson vestra. Dáinn í Saskatchewan árið 1910. Maki: 1889 Valgerður Eiríksdóttir f. í Árnessýslu árið 1859. Bernharður fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og þaðan áfram í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem hann var einn af fyrstu landnemunum. Valgerður fór vestur með fjölskyldu Eiríks Ingimundarsonar árið 1887 en …
Guðrún Guðmundsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir fæddist í Borgarfjarðarsýslu 1. október, 1853. Maki: 1880 Þórður Guðmundsson d. 1884. Barnlaus Guðrún flutti vestur árið 1886 til Winnipeg í Manitoba og í maí, 1887 fór hún vestur í Þingvallabyggð í Saskatchewan og nam land. Bjó þar til ársins 1894 en þá flutti hún í byggð við Theodore í suðausturhorni fylkisins. Bjó þar í tíu ár en …
Kristján Jónsson
Kristján Jónsson fæddist 13. febrúar, 1875 í Dalasýslu. Dáinn í Saskatchewan 14. desember, 1955. Johnson vestra. Maki: Matthildur Johannesson af sænskum ættum. Börn: 1. Adolf 2. Ragna. Kristján fór til Noregs árið 1899 og dvaldi þar í tvö ár. Gekk í hjónaband og flutti þaðan vestur til Winnipeg í Manitoba og áfram í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1903.
Kristján J Kristjánsson
Kristján Jóhann Kristjánsson fæddist árið 1865 í Gullbringusýslu. Maki: Petrína Pétursdóttir. Börn: 1. Jóhann 2. Guðrún. Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba um aldamótin og fóru í Þingvallabyggð í Saskatchewan um vorið 1900. Námu þar land og bjuggu á því.
Magnús Sigurðsson
Magnús Sigurðsson var ættaður úr S. Múlasýslu. Dáinn í Saskatchewan 1893. Maki: Ingigerður Jónsdóttir, upplýsingar vantar. Börn: upplýsingar vantar Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba og þaðan árið 1886 í Þingvallabyggð í Saskatchewan þar sem þau námu land. Ingigerður flutti úr byggðinni þegar Magnús lést.
