Rhoda L Sherwood
Marie L Sherwood
Emma L Sherwood
Kristín Magnúsdóttir
Kristín Magnúsdóttir fæddist 4. september, 1819 í Rangárvallasýslu. Dáin í Utah árið 1887. Ógift og barnlaus. Heimild í Utah segir að hugsanlega hafi Kristín farið vestur með ársgamla stúlku dóttur, Þuríðar og Magnúsar. Sú er ekki á lista Íslendinga í Utah. Fór vestur til Utah árið 1857 samferða Magnúsi Bjarnasyni og konu hans Þuríði Magnúsdóttur.
Kristín Markúsdóttir
Kristín Markúsdóttir fæddist 7. nóvember, 1833 í Árnessýslu. Dáin í Spanish Fork 1. nóvember, 1880. Maki: Pétur Valgarðsson f. 31. desember, 1842 í Gullbringusýslu, d. 14. október, 1918. Kristín og Pétur fluttu vestur til Spanish Fork í Utah árið 1876.
Kristján Magnússon
Kristján Magnússon fæddist í Gullbringusýslu 11. nóvember, 1872. Dáinn í Salt Lake City 16. apríl, 1951, grafinn í Spanish Fork. Kris eða Chris Einarson í Utah. Ókvæntur og barnlaus. Kristján fór vestur til Utah árið 1884 og settist að í Spanish Fork. Kristján vann við námugröft, átti land og stundaði búskap.
