Jón K Jónsson
Jón Kristinn Jónsson fæddist 11. júlí, 1891 í Vestmannaeyjum. Dáinn í Castle Gate í Utah 30. nóvember, 1934. Kris Hreinson vestra. Maki: Rhoda, uppruni ókunnur. Börn: Íslensk heimild, FVTV, segir þau hafa eignast átta börn. Jón var rétt eins árs þegar foreldrar hans, Jón Hreinsson og Kristín Guðmundsdóttir, fluttu með börn sín til Spanish Fork í Utah árið 1892.
Elizabeth Ward
Jón Jóhannesson
Jón Jóhannesson fæddist í Húnavatnssýslu 2. júní, 1862. Dáinn í Utah 17. febrúar, 1930. Maki: Johanne Marie Jensen f. í Danmörku 15. ágúst, 1863. Börn: Upplýsingar vantar. Jón tók trú Mormóna 13. maí, 1894 og fór vestur til Utah 30. júní, sama ár. Hann settist að í Cleveland í Utah.
