Ásmundur Bjarnason

ID: 18994
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1958

Ásmundur Bjarnason fæddist í S. Múlasýslu 29. janúar, 1874. Dáinn í St. Peter í Nicollet sýslu í Minnesota 6. desember, 1958.

Maki: Ingibjörg Guðmundsdóttir f. 11. október, 1879 í Minneota í Minnesota, d. 2. desember, 1966 í Hennepin sýslu í Minnesota.

Börn: 1. Cecil Sigurður f. 14. júlí, 1919 í Minneota 2. Charles Steven Magnús f. 1922 í Minneapolis.

Ásmundur flutti vestur til Minnesota eftir aldamót og fór til Minneota. Þar hafði Ingibjörg alist upp hjá foreldrum sínum, Guðmundi Péturssyni og Sesselju Hermannsdóttur. Ásmundur og Ingibjörg fluttu til Minneapolis og bjuggu þar í fjölda mörg ár.