Alfreð Sigurjónsson

ID: 18911
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1882
Dánarár : 1966

Alfreð Sigurjónsson fæddist 1882 í Marshall í Minnesota. Dáinn 11. júlí, 1966 í Lincoln sýslu. Alfred Swanson vestra.

Maki: Jóhanna Kristín Pétursdóttir fæddist í Lincoln sýslu í Minnesota 20. júní, 1892. Dáin 15. janúar, 1975 í Ivanhoe í Minnesota. Hannah Christine Gudmundson vestra.

Börn: 1. Alfred Raymond f. 1918 2. Carrol Pétur f. 2. febrúar, 1920 3. Leslie James f. 5. nóvember, 1924 4. Kenneth Lee f. 2. febrúar, 1931.

Foreldrar Alfreðs, Sigurjón Svanlaugsson og Elísabet Guðmundsdóttir fluttu vestur til Kanada árið 1875 og settust að í Marklandi í Nova Scotia. Þar hét Sólheimar. Fluttu þaðan um 1880 til Minnesota og bjuggu í Marshall í Lyon sýslu.  Faðir Jóhönnu, Pétur Guðmundsson flutti vestur til Minnesota árið 1878 með móður sinni Ingibjörgu Þorkelsdóttur. Móðir Jóhönnu var Guðrún Þóra Pálsdóttir. Jóhanna og Alfreð bjuggu í Lincoln sýslu.