ID: 11570
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Aðalbjörg Ásbjörnsdóttir fæddist árið 1864 í N. Múlasýslu..
Maki: Guðmundur Jónsson f. 4. maí, 1855 á Refsstað í N. Múlasýslu, d. 11. september, 1920 í Minneapolis. Tók föðurnafnið Rafnson vestra.
Börn; 1. Franklin T. f. 14. mars, 1895 2. Marvin Sigurður f. í október, 1898, d. 16. desember, 1898 3. Marvin William f. 1900 4. Lillian f. 1902.
Aðalbjörg flutti vestur til Minnesota árið 1884. Guðmundur flutti vestur árið 1889 og settist að í Marshall í Minnesota. Guðmundur flutti þaðan og settist að í Minneota. Mun hafa starfað þar í kjötverslun. Hann og Aðalbjörg fluttu til Minneapolis um 1920.
