Aðalbjörg Jóhannsdóttir

ID: 17349
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1910

Aðalbjörg Jóhannsdóttir Mynd VíÆ I

Fyrir aftan Thor, sonur Óskars, Ingunn Alda, Óskar og Aðalbjörg. Sitjandi: Denise, dóttir Ingunnar, heldur á syni sínum Cody, þá Denise dóttir Ingunnar og loks Þórarinn Mynd  A Century Unfolds.

Aðalbjörg Jóhannsdóttir fæddist 1. maí, 1910 í Nýja Íslandi. Bogga Sigvaldason vestra.

Maki: 4. nóvember, 1936 Þórarinn Guðni Björnsson f. í Churchbridge í Saskatchewan 16. júlí, 1910. Thorarinn G Sigvaldason vestra.

Börn: 1. Óskar Þór f. 8. nóvember, 1937 2. Hulda Signý f. 7. janúar, 1941 3. Ingunn Alda f. 15. janúar, 1945.

Þórarinn var sonur Björns Ingvars Sigvaldasonar og Guðjónu Láru Guðnadóttur landnema í Víðirbyggð í Nýja Íslandi 1902. Aðalbjörg var dóttir Jóhanns Sæmundssonar og Þóru Guðmundsdóttur landnema í Geysirbyggð Þórarinn og Aðalbjörg voru bændur í Framnesbyggð.