Aðalbjörg Jónsdóttir

ID: 11807
Fæðingarár : 1838
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1914

Björn Gíslason og Aðalbjörg Jónsdóttir Mynd Well Connected

Aðalbjörg Jónsdóttir fæddist 24. september, 1838 í S. Múlasýslu. Dáin 15. september, 1914 í Minnesota.

Maki:  Björn Gíslason f. 3. september, 1826 í S. Múlasýslu, d. 12. ágúst, 1906 í Westerheim hreppi í Lyon sýslu í Minnesota.

Börn: 1. Sigurbjörn Ólafur f. 16, júlí, 1864 d. 2. nóvember, 1864 2. Jón f. 13. octóber, 1865, d. ungur 3. Ólöf (Olive) Sigurbjörg f. 15. febrúar, 1868 d. 1919 4. Þorvaldur (Walter) f. 16. octóber, 1869 5. Jón Bjornsson f. 6. desember, 1871 6. Björn 29. maí, 1873 7. Halldór f. 1875 8. Árni f.8. ágúst, 1877 9. Pétur f. 1879 í Minnesota. Björn átti dóttur, Ingibjörgu (Emma) f. 23. september, 1873 með Sigríði Sigfúsdóttur, f. 21. september, 1837. Börnin skráðu sig öll Gislason vestra.

Þau fluttu vestur til Minnesota árið 1879 og settust að í Westerheim hreppi í Lyon sýslu.