Aðalborg Sigfúsdóttir

ID: 12532
Fæðingarár : 1880
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Aðalborg Sigfúsdóttir fæddist árið 1880 í N. Múlasýslu.

Maki: 1907 Andrés Rasmussen f. 1871 í Fagradal í Vopnafirði í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Marion 2. George 3. Alex 4. Dagmar 5. Albert 6. Vilfred 7. Alexander 8. Karl 9. Lára

Aðalborg flutti vestur til Kanada árið 1903, Andrés flutti til Winnipeg í Manitoba árið 1904 þá kvæntur maður.  Hann missti konu sína árið 1906. Andrés var um hríð í Nýja Íslandi en flutti þaðan til Saskatchewan eftir 1906. Þau fluttu þaðan til Winnipegosis árið 1914.