ID: 20185
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1902
Dánarár : 1959

Aðalsteinn Sigurðsson Mynd: VÍÆ II
Aðalsteinn Sigurðsson fæddist í Narrows, Manitoba 2.maí, 1902. Dáinn í Port Arthur, Ontario 10. október, 1959.
Maki: Stefanía Anna Framarsdóttir Eyford f. 6. febrúar, 1908 í Winnipeg, d. 23. ágúst, 1981.
Börn: 1. Brian Gilbert f. 23. júlí, 1933, d. 1. janúar, 1948 2. Gerald Robert f. 26. nóvember, 1944.
Aðalsteinn var sonur Jóns Sigurðssonar og Pálínu Þórðardóttur sem vestur fluttu árið 1887. Þau voru bændur Eriksdale í Manitoba þar sem Aðalsteinn og Anna hófu búskap. Aðalsteinn gerðist seinna vélstjóri í járnbraut í Ontario. Foreldrar Önnu voru Framar Jónsson og Anna Jónasdóttir í Vogum, Manitoba.