ID: 11550
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1961
Ágúst Halldór Jónsson fæddist 17. apríl, 1877 í N. Múlasýslu. Dáinn 8. júní, 1961 í Kaliforníu. Gust Rafnson vestra.
Maki: 1899 Margrét Jónsdóttir f. 1881 í S. Múlasýslu, d. 30. september, 1941 í Hennepin sýslu í Minnesota.
Börn: 1. Jóhanna Ingibjörg f. 11. janúar, 1901, d. 8. mars, 1981 í Kaliforníu 2. Marvin T. f. 25. september, 1903 3. Halldór f. 1904 4. Sigurjóna f. 1906 5. Esther f. 1911 5. Vivian Margrét f. 1913.
Ágúst fór vestur árið 1889 með foreldrum sínum, Jóni Rafnssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur og systkinum. Þau settust að í Lyon sýslu í Minnesota. Margrét fór vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Jóni Eyjólfssyni og Maríu Ingibjörgu Jónsdóttur og systkinum. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota.
