Ágúst S Eyjólfsson

ID: 1086
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : Árnessýsla

Ágúst S Eyjólfsson Mynd Laugardalsætt

Ágúst Samúel Eyjólfsson fæddist 19. ágúst, 1887 í Árnessýslu. Dáinn í Manitoba 1. júní, 1970. Agust S. Eyolfson vestra.

Maki: Guðrún Grímsdóttir f. 6. janúar, 1889

Börn: 1. Guðmundur 2. Emil 3. Verma 4. Gunnar 5. Laufey. Þrjú önnur dóu barnung.

Ágúst fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1901 (kanadísk heimild segir 1902) og dvaldi vestra einhver ár. Sneri aftur til Íslands trúlega til að sækja konuefni sitt en Guðrún fór vestur árið 1910.

Þau gengu í hjónaband stuttu seinna og hófu búskap á landi Ólafs Ólafssonar sem var skammt sunnan við Big Point byggð. Hann keypti seinna land í byggðinni og bjó þar.