ID: 9275
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Albert Jónsson Mynd FAtV

Björg Jónasdóttir Mynd FAtV
Indriði Albert Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 2. september, 1855. Dáinn 9. júní, 1925 í Nýja Íslandi.
Maki: Björg Jónsdóttir f. 2. janúar, 1863, d. 18. mars, 1926.
Börn: 1. Helgi f. 27. desember, 1883 2. Arnfríður f. 1887 3. Maren f. 1889 4. Kjartan 5. Jón 6. Benjamín Þorvaldur 7. Margrét 8. Jónas Ingi. Fóstursonur þeirra hét Einar Björgvin Marínó.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889 og settust að á Mel í Árnesbyggð.
