Andrea K Sveinbjörnsdóttir

ID: 19571
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Dalasýsla

Andrea Kristín Sveinbjörnsdóttir fæddist í Dalasýslu 25. apríl, 1861.

Maki: Wilson, af enskum ættum.

Bar: 1. Drengur, upplýsingar vantar.

Andrea flutti vestur með móður sinni, Guðbjörgu Jónsdóttur fyrir 1880. Flutti með manni sínum til Kaliforníu og bjó nærri eða í Los Angeles.