Andrés Jónsson

ID: 6895
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1938

Andrés Skagfeld Mynd WtW

Steinunn Þórarinsdóttir Mynd WtW

Andrés Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 27. mars, 1855. Dáinn í Manitoba 21. júlí, 1938. Skagfeld vestra.

Maki: 1) Kristín Ingveldur Jónsdóttir f. 1854 2) Steinunn Þórarinsdóttir f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1860, d. 12. nóvember, 1929.

Börn: Með Kristínu 1. Guðrún f. 1880 Með Steinunni 1. Kristín f. 19. desember, 1885, d. 16. mars, 1930 2. Sigurbjörn (Steini) f. 24. janúar, 1888 3. Stefanía 4. Valgerður 5. Stanley 6. Alexander 7. Jóhanna 8. Emily 9. Clara 10. Dóra. Steinunn átti Þórarinn Sigbjörnsson f. 1881, d. 1904, með fyrri eiginmanni, Sigbirni Eyjólfssyni.

Andrés flutti vestur með Kristínu og Guðrúnu árið 1883. Kristín lést af barnsförum skömmu eftir komuna vestur en sonur, Jón, lifði fáein ár. Steinunn og Sigbjörn fóru vestur árið 1882 en Þórarinn fór með ömmu sinni, Jóhönnu Nikulásdóttur árið 1883.  Andrés bjó fyrst í Nýja Íslandi, þaðan fór hann til Selkirk og eftir einhvern tíma til Gimli þar sem hann vann við fiskflutninga. Hann nam land í Lundarbyggð árið 1904 en seinustu árin bjó hann í Oak Point.