Anna Bjarnadóttir

ID: 9761
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1945

Anna Bjarnadóttir fæddist árið 1867 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 5. september, 1945 í Wynyard.

Maki: 16. desember, 1892 Sigfús Sigfússon fæddist 21. mars, 1868 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Washington 17. mars, 1954, grafinn í Blaine.

Börn: 1. Aðalsteinn f. 3. október, 1893 2. Bjarni f. 3. september, 1897, d. 29. mars, 1917 3. Sigfús Þórhallur f. 28. desember, 1910.

Anna fór vestur árið 1879 með sínum foreldrum, Bjarna Olgeirssyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur sem bjuggu í Garðarbyggð í N. Dakota.  Sigfús flutti vestur árið 1882 með foreldrum sínum, Sigfúsi Jónassyni Bergamann og Þórunni Jónsdóttur, landnema í N. Dakota. Sigfús og Anna hófu búskap í N. Dakota, fluttu þaðan til bæjarins Warrington í Oregon skömmu eftir aldamót og bjuggu þar í tvö ár. Árið 1905 fluttu þau vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land á milli Quill vatnanna. Þar reyndu þau búskap í fáein ár en fluttu 1909 í Wynyard þar sem Sigfús hóf verslunarrekstur.