Anna Erlendsdóttir

ID: 2093
Fæðingarár : 1885
Dánarár : 1969

Anna Erlendsdóttir fæddist 16. ágúst, 1885 á Akranesi í Borgarfjarðarsýslu. Dáin í Manitoba 1969.

Maki: 17. desember, 1908 Jón Jósefsson f. á Melstað í Nýja Íslandi 17. desember, 1881.

Börn: Jón og Anna eignuðust þrjú börn sem öll dóu kornbörn. Þau ættleiddu 1. Snjólaug f. 7. júlí, 1914 2. Jón Þorsteinn Leonard f. 23. ágúst, 1915. 3. María f. 7. september, 1924, d. 24. júlí, 1958 4. John Howardson.  Faðir Maríu og John var Jón Hávarðarson, sem vestur flutti frá Kirkjubóli í S. Múlasýslu árið 1888.

Jón flutti vestur til Kanada árið 1876 og settist að í Árnesbyggð. Nam land og þar hét Skógarströnd. Flutti þaðan á aðra jörð í byggðinni 1880 sem hann kallaði Melstað. Anna flutti vestur til Winnipeg árið 1889 með foreldrum sínum, Erlendi Erlendssyni og Ólínu Guðmundsdóttur úr Borgarfjarðarsýslu.