ID: 20314
Fædd(ur) vestra
Anna Fjóla Snæbjörnsdóttir fæddist í Lundar.
Maki: 1937 Guðmundur Steinn Fjeldsted f. 1. mars, 1914 í Lundar, Manitoba. Dáinn 14. ágúst, 1977
Börn: 1. Kristján Roy f. 9. ágúst, 1937 2. Jónas Eggert f. 29. júlí, 1940.
Guðmundur var sonur Kristjáns Eggertssonar Fjeldsted og Guðbjargar Jónsdóttur í Lundar. Anna Fjóla var dóttir Snæbjörns Jónassonar Halldórssonar og Guðnýjar Sveinbjörnsdóttur í Lundarbyggð. Guðmundur vann landbúnaðarstörf og stundaði einnig fiskveiðar. Hann varð seinna umsjónarmaður vinnuvéla vegagerðarinnar í byggðinni.