Anna Gunnlaugsdóttir

ID: 12268
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1910

Anna Kristrún Gunnlaugsdóttir fæddist 12. júní, 1849 í N. Múlasýslu. Dáin í Vatnabyggð í Saskatchewan 6. maí, 1910.

Maki: Jón Jónsson f. í N. Múlasýslu 29. september, 1856. Westdal vestra. Dáinn á Betel í Nýja Íslandi árið 1932

Börn: 1. Einar f. 1881, d. 1911 2. Kristjana f.26. janúar, 1883 3. Björgvin f. 1884, d. 1940 4. Páll f. 1887 5. Sigga 6. Helga 7. Haraldur. Með þeim vestur fór Grímur Guðjónsson, tökubarn.

Þau fluttu vestur árið 1904 til Winnipeg í Manitoba og fóru strax vestur á bóginn. Þau stigu á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan í vetrarbyrjun sama ár. Það var í svonefndri Wynyardbyggð.