Anna Helgadóttir

ID: 6388
Fæðingarár : 1892
Anna Sigríður Helgadóttir Mynd VÍÆ II

Anna Sigríður Helgadóttir Mynd VÍÆ II

Anna Sigríður Helgadóttir fæddist í Mikley í Nýja Íslandi 13. apríl, 1892.

Maki: 25. ágúst, 1910 Þorbergur Brynjólfsson fæddist í Mikley 28. febrúar, 1890, d. í Nýja Íslandi 5. apríl, 1962.   

Börn: 1. Allan Valdimar f. 3. mars, 1911, d. 14. nóvember, 1039 2. Helgi f. 10. janúar, 1910, d. barnungur 3. Magnúsína f. 1. júlí, 1914 4, Helgi f. 25. september, 1916 5. Brynjólfur f. 10. febrúar, 1918 6. Ingibjörg Aðalheiður f. 30. apríl, 1920 7. Einarína Valgerður f. 14. nóvember, 1921 8. Þorbergur (Thorbergur) Ingólfur f. 21. september, 1925 9. Vigdís Anna f. 1. október, 1926, d. 30. nóvember, 1929 10. Harold Alvin Marino f. 9. desember, 1931.

Þorbergur var sonur Brynjólfs Jónssonar og Katrínar Magnúsdóttur,sem vestur fluttu úr A. Skaftafellssýslu árið 1889. Hann bjó lengi í Mikley, stundaði fiskveiðar í Winnipegvatni í rúm 40 ár. Hann tók virkan þátt í samfélagsmálum eyjarskeggja, sat í safnaðarstjórn og skólanefnd. Foreldrar Önnu voru Helgi Sigurðsson og Valgerður Brynjólfsdóttir í Mikley.