
Anna Kristín Jónsdóttir Mynd Dalamenn III

Frá vinstri: Anna, Kristín og Margrét Mynd Dalamenn
Anna Kristín Jónsdóttir fæddist í Strandasýslu 19. nóvember, 1850. Dáin í Eyfordbyggð 21. desember, 1923. Anna Geir vestra.
Maki: 1877 í Nýja Íslandi, séra Jón Bjarnason gaf þau saman: Jóhann Geir Jóhannesson fæddist í Snæfellsnessýslu 9. ágúst, 1830. Dáinn í Eyfordbyggð í N. Dakota 22. september, 1887.
Börn: 1. Kristján Einar f. 1879 í Nýja Íslandi 2. Margrét f. 1881 í Thingvalla, d. 31. desember, 1895 3. Anna f. 1883, d. 28. desember, 1895 4. Kristín f. 1884, d. 13. janúar, 1896 5. Jóhanna Geirlaug (Lauga Geir) f. 13. apríl, 1888. Jóhann átti tvo syni frá fyrra hjónabandi 1: Einar Kristján f. 1870 d. í Nýja Íslandi d. í bólusótt í Nýja Íslandi 1876/77 2. Jóhannes Magnús f. 1872 d. 1893 í Eyfordbyggð í N. Dakota.
Jóhann Geir, ekkill, flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með syni sína tvo og aldinn föður, Jóhannes Grímsson. Á sama skipi var Anna Jónsdóttir og á leiðinni yfir hafið réðst hún til hans í Nýja Íslandi. Þar gengu þau í hjónaband og bjuggu í koti suður af Hnausa. Þau fluttu suður til N. Dakota árið 1888 og bjuggu suður af Mountain í Eyfordbyggð.
Fjölskyldan tók nafnið Geir í N. Dakota. Móðir Jóhanns hét Geirlaug Davíðsdóttir. Sjá frekar um Önnu í Íslensk arfleifð!
