ID: 9426
Fæðingarár : 1836
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1923
Anna Pálsdóttir fæddist árið 1836. Dáin í Curitypa í Brasilíu árið 1923.
Maki: Hallgrímur Þorkelsson f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1838, d. í Curitypa í Brasilíu árið 1880
Börn: 1. Páll f. 1862 2. Vernharður f. 1863 3. Sigtryggur f. 1865 4. Hólmfríður f. 1869, d. í Hamborg 1873 5. Þorkell f. 1871 6. Hólmríður f. í Brasilíu c.1875.
Þau sigldu frá Akureyri sumarið 1873 til Kaupmannahafnar og þaðan til Hamborgar. Þaðan var svo siglt vestur og komið á ákvörðunarstað í Paraná fylki á austurströnd Brasilíu 8. janúar, 1874. Settust þau að á eigin landi í Curitypa og þar lést Hallgrímur en Anna hélt búskapnum áfram til dauðadags.
