Anna Sigurðardóttir

ID: 14078
Fæðingarár : 1880
Dánarár : 1962

Anna Sigurðardóttir Mynd VÍÆ I

Anna Sigurðardóttir fæddist árið 1880 í S. Múlasýslu, d. í Winnipeg 25. september, 1962.

Maki: 2. mars, 1902 Jón Halldórsson f. 30. apríl, 1875 í Húnavatnssýslu, d. í Winnipeg 7. mars, 1943.

Börn: 1. María Violet f. 30. desember, 1903 2. Ingibjörg f. 7. júní, 1905 3. Kristjón f. 13. apríl, 1907 4. Sigríður f. 23. mars, 1909 5. Halldór Þorbergur f. 23. nóvember, 1912 6. Guðfinna f. 24. janúar, 1915 7. Sigurbjörg Rose f. 1. maí, 1918.

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba með Jónasi Jónssyni og fjölskyldu hans árið 1883 og fór til foreldra sinna, Halldórs Jónssonar og Ingibjargar Jónatansdóttur í Fljótsbyggð. Sama ár fór Anna vestur með sínum foreldrum, Sigurði Björnssyni og Guðfinnu Oddsdóttur, sem settust að í Ekru í Hnausabyggð. Jón keypti hús í Lundi (seinna Riverton) og þar bjuggu þau til ársins 1905 en seldu þá og tóku land í Víðir- og Sandhæðabyggð. Þau seldu það árið 1919 og fluttu til Riverton þar sem þau bjuggu til ársins 1941 en þá fluttu þau til Winnipeg.