Ari V Benediktsson

ID: 8299
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1920

Ari Vídalín Benediktsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1864. Dáinn í Clatsop sýslu í Oregon 30. janúar, 1920. Harvey Witalien eða Harbey B. Vidalin vestra.

Maki: Rachel Dobber f. í Texas árið 1886.

Börn: 1. Herbert Vernon f. 17. september, 1909 2. Margrét E. f. 14. desember, 1910.

Ari flutti vestur til Wisconsin árið 1873 með foreldrum sínum Benedikt Vídalín Halldórssyni og Sigríði Þorvaldsdóttur. Þau settust að í Minnesota fyrir 1880 og bjuggu það ár í Minneota. Þar var Ari fermdur og mun hafa verið með fyrstu börnum, íslenskum til að fermast þar um slóðir. Hann var metnaðarfullur og árið 1889 starfar hann hjá fréttablaðinu Helena Herald í Helena í Montana. Þaðan lá leið hans til Portland í Oregon, bjó árið 1910 með konu og nýfæddum syni í Los Angeles í Kaliforníu árið 1910.