
Arinbjörn Sigurgeirsson
Arinbjörn Sigurgeirsson fæddist í Bárðardal í S. Þingeyjarsýslu 21. apríl, 1866. Dáinn í Winnipeg 13. nóvember, 1951. Bardal vestra.
Maki: 5. nóvember, 1893 1) Sesselja Þorgeirsdóttir f. í Húnavatnssýslu f. 5. maí, 1875, d. í Winnipeg 8. febrúar, 1899 2) 5. júní, 1900 Margrét Ingibjörg Ólafsdóttir f. í Húnavatnssýslu 24. október, 1880.
Börn: Með Margréti 1. Amelía Sesselja f. 17. ágúst, 1902 2. Njáll Ófeigur f. 18. nóvember, 1904 3. Svava f. 16. júní, 1906 4. Carl Luther f. 19. júlí, 1909 5. Ósk f. 28. júlí,1910 6. Signý f. 10. janúar, 1912 7. Helga Vigdís f. 20. janúar, 1914 8. Arinbjörn Gerhard f. 9. september, 1915 9. Margrét Stefanía f. 15. desember, 1917 10. Agnes f. 22. ágúst, 1921 11. Paul Sigurgeir f. 3. september, 1926.
Arinbjörn flutti vestur til Winnipeg úr Húnavatnssýslu árið 1886. Sesselja fór vestur með Halldóri, bróður Arinbjörns árið 1887 en hún var fósturdóttir hans. Margrét Ingibjörg fór vestur með sínum foreldrum árið 1887.
