
Arnbjörg Sigríður Bjarnadóttir Mynd VÍÆ II
Arnbjörg Sigríður Bjarnadóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu 26. maí, 1893.
Maki: 25. desember, 1913 Guðmundur Ólafsson f. í Manitoba 19. febrúar, 1890, d. 14. nóvember, 1963.
Börn: 1. Arnbjörg Ástríður Margrét f. 22. nóvember, 1914 2. Solveig Lillian Þúríður f. 25. júní, 1916 3. Florence Guðríður Marcella f. 23. október, 1918 4. Lawrence Ólafur Bjarni f. 12. mars, 1921 5. Harald Kristján Mundi f. 30. mars, 1923 6. Violet Ellanora Rose f. 12. febrúar, 1925.
Arnbjörg flutti til Vesturheims með foreldrum sínum, Bjarna Árnasyni og Ástríði Sigurðardóttur árið 1900. Guðmundur var sonur Ólafs Guðmundssonar og Margrétar Kristjánsdóttur er vestur fluttu árið 1887. Arnbjörg og Guðmundur kynntust í Manitoba þar sem þau hófu búskap. Þau bjuggu svo í Saskatchewan allmörg ár áður en þau fluttu til Flin Flon í Manitoba árið 1935. Þau fluttu þaðan haustið 1948 til Brentwood Bay í Bresku Kolumbíu.
