Árni Andrésson

ID: 9831
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Árni Andrésson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1842.

Maki: Sigríður Albína Árnadóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1845.

Börn: 1. Ingibjörg f. 1874 2. Þorsteinn f. 1875 3. Emmy Ágústa f. 1883, d. 17. mars, 1936.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Námu land í Árnesbyggð sem nefndist Árnastaðir. Þaðan fluttu þau í Víðidalstungu í sömu sveit. Þau fóru þaðan austur yfir Winnipegvatn og settust að í Sandy River þar sem þau voru einhvern tíma en enduðu loks í Poplar Park sunnan við Winnipegvatn.