Árni Halldórsson

ID: 19108
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla

Árni Halldórsson fæddist í Snæfellsnessýslu árið 1858.

Maki: Sigríður Sigurðardóttir f. 1858 í Snæfellsnessýslu.

Börn: 1. Ástfríður f. 1890  2. Lárus f. 1892 3. Súsanna Laufey f. 1895 4. Guðríður f. 1898 5. Kristín.  Ástfríður og Guðríður  fóru ekki vestur.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba á fyrsta áratug 20. aldar og fóru þaðan fljótlega til Glenboro. Bjuggu þar í nærri 30 ár en fluttu þaðan til Oak Point þar sem Árni lést. Sigríður flutti þá til Winnipeg.