Árni Hallgrímsson

ID: 8631
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1955

Árni Hallgrímsson fæddist 25. júlí, 1870 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Brownbyggð í Manitoba árið 1955. Helgason vestra.

Maki: 16. desember, 1892 Elísabet Sigfúsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1871, d. í Manitoba árið 1930.

Börn: 1. Leonard f. í Garðar, 25. september, 1893 2. Elis f. í Garðar 26. janúar, 1895 3. Jón Sigfús f. í Garðar 22. nóvember, 1898 4. Kristbjörg f. í Brownbyggð 3. janúar, 1905 5. Hallgrímur Helgi f. 9. nóvember, 1905 6. Þórunn Valgerður f. 14. júlí, 1907.

Árni flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 með fósturforeldrum sínum, Árna Þorleifssyni og Elísabetu Jónasdóttur. Þau settust að í N. Dakota. Foreldrar Árna, Hallgrímur Helgason og Kristbjörg Árnadóttir, fluttu vestur þangað árið 1889. Árni og Elísabet fluttu í Brownbyggðina syðst í Manitoba árið 1900.