Árni Jónsson

ID: 12613
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : A. Skaftafellsýsla
Dánarár : 1893

Emma Árnadóttir og Jónína Árnadóttir Mynd WtW

Árni Jónsson fæddist í Austur Skaftafellssýslu árið 1859. Dáinn í Lundarbyggð árið 1893. Dalman vestra.

Maki: Emma Árnadóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 29. október, 1869, d. 30. mars, 1959.

Börn: 1. Hólmsteinn f. 1889, dáinn sama ár í Winnipeg. 2. Jónína 2. Hólmsteinn f. 1892 3. Helga f. 1893.

Árni og Emma fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889, Steinunn Jónsdóttir, móðir Emmu var með í för. Hún lést í Maidstone í Saskatchewan. Þau fluttu í Lundarbyggð og bjuggu þar þegar Árni lést. Emma giftist aftur Vigfúsi Olson. Þau fluttu til Saskatchewan og bjuggu þar árið 1920 þegar Vigfús féll frá. Emma flutti seinna aftur til Lundar og bjó þar.