Árni Jónsson

ID: 12693
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1946

Árni og Helga Mynd RbQ

Árni Jónsson: Fæddur á Hólsfjöllum í S. Þingeyjarsýslu árið 1860. Dáinn í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1946.

Maki: Helga Hallgrímsdóttir f. 1863 í N. Múlasýslu, d. í Saskatchewan árið 1948.

Börn: 1. Laufey f. 1887 2. Jón f. 1889 3. Sigríður f. 1893 4. Guðmundur f. N. Dakota 5. Ernest f. N. Dakota 6. Karl (Carl) f. í Winnipegosis 7. Benedikt f. í Winnipegosis.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fóru þaðan suður til N. Dakota. Fluttu árið 1900 til Winnipegosis og þaðan 1907 til Vatnabyggða í Saskatchewan þar sem hann nam land í Grandy sýslu.