Árni Jónsson

ID: 2305
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1923

Árni Jónsson og Helga Jónsdóttir Mynd WtW

Árni Jónsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu árið 1842. Dáinn í Lundarbyggð árið 1923. Reykdal vestra.

Maki: Helga Jónsdóttir f. í Borgarfjarðarsýslu árið 1834, d. 1916.

Börn: 1. Kristín f. 1875 2. Páll f. 3. júlí, 1878. Helga átti tvo syni af fyrra hjónabandi sem báðir fluttu vestur 1. Jón f. 24. ágúst, 1857, d. 1927 2. Þorvaldur f. 1864. Öll börnin voru Reykdal vestra.

Árni og Helga fluttu vestur með börn sín tvö, Kristínu og Pál árið 1887. Þau fóru til Winnipeg í Manitoba og bjuggu þar til ársins 1889 en þá fluttu þau í Lundarbyggð.