Árni Sigvaldi Jónsson fæddist 3. september, 1862 í N. Múlasýslu. Dáinn í Minnesota árið 1928.
Maki: Sigríður Vigfúsdóttir f. árið 1864 í N. Múlasýslu, d. 1928 í Minnesota.
Börn: 1. Jónína f. 1884 2. Sigurbjörg f. 1885 3. Kristinn Sigurjón f. 8. maí, 1887, d. í Minnesota 1931 4. Petrína Svanborg f. 31. mars, 1890 5. Vigfús Jóhann f. 8. febrúar, 1894, d. 20. júlí, 1899, tvíburi 6. Jóseph f. 8. febrúar, 1894, d. 1900 7. Sigfinna Sigurbjörg f. 26. júní, 1896 8. Jóhanna Þórdís f. 17. júní, 1900 9. Victor Ellis f. 1903.
Árni flutti vestur til Minnesota árið 1880 með föður sínum, Jón Jónssyni frá Hraunfelli í Vopnafirði. Þeir settust að í Lincoln sýslu og þar bjuggu Árni og Sigríður. Hún var dóttir Vigfúsar Jósefssonar og Sigurborgar Hjálmarsdóttur sem vestur fóru árið 1878 til Minnesota.
