
Árni Sigfússon

Ólína Sigríður Jónasdóttir
Árni Sigfússon fæddist 27. ágúst, 1861 í N. Múlasýslu. Dáinn í Manitoba 20. febrúar, 1933. Josephson eftirnafn vestra
Maki: 1) Friðrika Helgadóttir f. 17. maí, 1867 í S. Þingeyjarsýslu, d. 27. nóvember, 1894 2) Björg Jónasdóttir f. í Húnavatnssýslu 12. október, 1866 d. 16. janúar, 1901 3) Ólína Sigríður Jónasdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu 29. ágúst, 1869, d. 26. júlí, 1942
Börn: Með Friðriku 1. Helgi Jónas f. 26. janúar, 1890 2. Sigfús f. 21. janúar, 1892 3. Vilborg Friðrika f. 27. nóvember, 1894, dó í fæðingu. Með Björgu 1. Sigurður f. 31. júlí, 1898 2. Vilborg Friðrika f. 12. október, 1900. Með Ólínu 1. Margrét f. 30. september, 1902 2. María f. 12. desember, 1904 3. Óskar f. 13. ágúst, 1907 4. Ólína Sigríður f. 22. mars, 1909 5. Guðrún f. 17. apríl, 1911 6. Árni f. 3. desember, 1912 7. Esther Aðalheiður f. 18. febrúar, 1914.
Árni og Friðrika fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba með syni sína árið 1893. Þau voru fyrst í Argylebyggð en fóru þaðan í Lincolnbyggðina í Minnesota. Árni flutti til Glenboro árið 1920 og bjó þar til dauðadags.
