Árni Sigurbjörnsson

ID: 10841
Fæðingarár : 1889

Árni Sigurbjörnsson Mynd VÍÆ IV

Árni Sigurbjörnsson fæddist 4. júní, 1889 á Vopnafirði í N. Múlasýslu.

Ókvæntur og barnlaus.

Árni missti móður sína, Oktavíu Jónsdóttur 2. apríl,1900. Hann var þá tekinn í fóstur af hjónunum Sigvalda Baldvinssyni og Guðrúnu Jónsdóttur. Hann fór með þeim til Vesturheims árið 1902 og settust þau að í N. Dakota. Árni bjó þar alla tíð, lengst í Garðarbyggð.