Árni Tómasson fæddist 12. ágúst, 1866 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Brownbyggð í Manitoba 13. desember, 1937.
Maki: 18. desember, 1899 Kristín Ingunn Líndal f. í Húnavatnssýslu árið 1883.
Börn: 1. Guðrún f. 8. janúar, 1900 í Brownbyggð 2. Ingibjörg f. 10. ágúst, 1902 3. Sigurrós Þórdís f. 11. september, 1904 4. Katrín Sigurbjörg f. 1. janúar, 1907 5. Jónatan f. 6. mars, 1909 6. Tómas f. 2. desember, 1911 7. Jóhann Páll f. 18. maí, 1914 8. Þorsteinn Líndal f. 24. ágúst, 1916 9. Júlíus Hannes f. 5. ágúst, 1922 10. Helga Stefanía Björg f. 28. október, 1926. Uppeldissonur Björgvin Ingólfur Hallgrímsson f. 5. maí, 1902 á Íslandi.

Fyrir aftan: Tómas, innfelld Björgvin, Jóhann og Þorsteinn. Sitjandi Árni, Katrín, Sigurrós, Jónatan, Guðrún, Ingibjörg og Kristín Líndal. Fyrir framan Júlíus Hannes og Helga. Mynd Bb.
Árni flutti vestur til N. Dakota árið 1887. Foreldrar hans og systkini fóru þangað ári seinna. Kristín Ingunn flutti vestur þangað með sínum foreldrum árið 1887. Árni og Ingunn fluttu í Brownbyggð í Manitoba árið 1899 og bjuggu þar alla tíð.
