Árnína Þorláksdóttir

ID: 10511
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1906

Árnína Þorláksdóttir fæddist í Þistilfirði í N. Þingeyjarsýslu 1. apríl, 1867. Dáin í Hólabyggð í Manitoba 4. mars, 1906.

Maki: Kristján Sigurðsson f. í N. Þingeyjarsýslu 4. ágúst, 1857, d. á Íslandi árið 1925

Börn: 1. Sigþór f. 1895. Dáinn 1917  2. Karólína f. 22. maí, 1897.

Fluttu vestur árið 1903. Kristján var samferða bróður sínum Ásmundi og kom í Hólabyggð í Manitoba sama ár. Kristján hætti búskap þegar kona hans dó og vann hér og hvar. Hann fór til Íslands að loknu stríði 1918 og dó þar árið 1925