Arnþóra Jóhannesdóttir fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1866.
Maki: Sigurjón Gestsson f. í N. Þingeyjarsýslu árið 1860, d. í N. Dakota 1936.
Börn: 1. Jóhann f. 1885 d. 1914 2. Matthías f. 1887 3. Helgi f. 1888 4. Sigurjóna f. 3. mars, 1890 5. Gestur f. 1892 6. Rósmann Haraldur f. 28. desember, 1893 7. Jóhannes f. 7. febrúar, 1895 8. Ágúst Guðni f. 1896 9. Konráð f. 14. júlí, 1898 10. Aldís Svanfríður Þóra f. 14. júlí, 1900 11. Magnús f. 7. febrúar, 1904, d. 1930 12. Oktavía Guðný f. 21. september, 1908. Þrjú börn þeirra dóu ung, Hólmfríður og tvíburar, Björgvin og Þórunn.
Arnþóra fór vestur til N. Dakota árið 1883 með foreldrum sínum, Jóhannesi Torfasyni og Helgu Daníelsdóttur. Sigurjón var vinnumaður hjá Jóhannesi og fór vestur með þeim. Hann og Arnþóra keyptu land í Eyfordbyggð þar sem þau bjuggu til ársins 1916. Þá fluttu þau í þorpið Grafton.
