Ásgeir Tómasson

ID: 4083
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Dalasýsla

Ásgeir Tómasson fæddist 9. ágúst, 1857 í Dalasýslu.

Maki: Valgerður Eiríksdóttir f. í Barðastrandarsýslu árið 1856.

Börn: 1. Margrét f. 1880 2. Octavíus Ingigeir 3. Valdimar Hjörtur.

Þau fluttu til Winnipeg árið 1882 og þaðan suður til N. Dakota. Árið 1890 flutti fjölskyldan vestur til Calgary í Alberta, bjó þar fáein ár en flutti svo í íslensku byggðina við Markerville.  Þar nam hann land um 1901, seldi það stuttu seinna og fór aftur til Calgary.