Áslaug Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 3. september 1883. Dáin í Glen Lake í Bresku Kólumbíu árið 1978.
Maki: 1906 Þorsteinn Jónsson f. 18. apríl, 1866 í S. Þingeyjarsýslu, d. 26. september, 1943. Þorsteinn Gauti Jónsson vestra.
Börn: 1. Kristjana f. 22. maí, 1906 2. Jórunn f. 4. október, 1908 3. Ester f. 28. mars, 1910 4. Jón f. 30. maí, 1912 5. Haraldur f. 28. mars, 1914 6. Kristbjörg Margrét f. 21. desember, 1915 7. Málmfríður Nanna f. 23. október, 1917 8. Kristrún Valgerður f. 2. maí, 1919 9. Edna f. 20. mars, 1921 10. Erla Guðný f. 28. apríl, 1925.
Þorsteinn fór vestur frá Gautlöndum til Kanada árið 1887 en Áslaug árið 1903 með föður sínum, Jóni Jónssyni frá Mýri. Þorsteinn bjó sunnarlega í Manitoba nærri Rottuá (Rat River) árið 1906 og var eitthvað í Vatnabyggð en þau fluttu þaðan til Winnipeg. Árið 1908 eru þau búsett í Pembina í N. Dakota en 1914 fluttu þau vestur í Vatnabyggð og keypti Þorsteinn land vestur af Wynyard. Áslaug flutti vestur að Kyrrahafi eftir lát Þorsteins.

Þessi hópmynd var tekin 8. október, 1914 í garði Steingríms Jónssonar nærri Wynyard. Aftasta röð: Nanna Jónsdóttir. Helgi Jónsson, Steringrímur Jónsson, Sessealja Jónsdóttir, kona Steingríms, Haraldur Jónsson og Hermann Jónsson, heldur á Hallfríði dóttur sinni. Miðröð: Þorsteinn Gauti með son sinn Jón, Áslaug Jónsdóttir heldur á syninum Haraldi, Jón Jónsson frá Mýri heldur á Ester, dóttur Þorsteins og Áslaugar, Guðný Hallgrímsdóttir, móðir Steingríms og tengdamóðir Jóns, Guðný Jónsdóttir, Indriði Skordal, þau halda á börnum sínum, Birni Jóni og Haraldi Guðmundi, Guðrún Snorradóttir, kona Hermanns Jónssonar með son þeirra, Hermann. Fremsta röð: Krisdtjana Þorsteinsdóttir, Guðný, Guðrún, dætur Steingríms og Sesselju. Helga, dóttir Guðnýjar Jónsdóttur og loks Hulda Indriðadóttir. Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri.
