Ásmundur Þorsteinsson

ID: 12922
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1927

Ásmundur Þorsteinsson Mynd FLNÍ

Bergþóra Jónsdóttir Mynd FLNÍ

Ásmundur Þorsteinsson fæddist í N. Múlasýslu 7. febrúar, 1842. Dáinn í Selkirk í Manitoba 29. september, 1927. Brown vestra.

Maki: Bergþóra Jónsdóttir f. í S. Múlasýslu 4. október, 1837, d. í Gimli 14. október, 1883.

Börn: 1. Jónína f. 1865, d. 22. september, 1948 2. Solveig f. 1869 3. Kristín f. 1. október, 1870, d. 5. nóvember, 1919 4. Þorsteinn f. 2. nóvember, 1872 5. Þuríður f. 1876.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba og námu land sunnarlega í Víðirnesbyggð sem þau kölluðu Fenhring. Fluttu þaðan að Dvergasteini í sömu byggð árið 1881 og bjuggu þar fáein ár. Þaðan lá svo leiðin til Selkirk.