
Baldur Stefánsson Mynd VÍÆ III
Baldur Stefánsson fæddist 25. september, 1879 í Shawano í Wisconsin. Dáinn í Alberta 13. júní, 1949. Baldur Stephansson vestra.
Maki: 7. desember, 1905 Sigurlína Benediktsdóttir f. í Pembina, N. Dakota 8. maí, 1883, d. í Alberta 25. október, 1944. Bardal fyrir giftingu.
Börn: 1. Stephan f. 26. júlí, 1906 2. Hrefna f. 7. ágúst, 1907 3. Cecil Benedikt f. 1. apríl, 1908 4. Jakobína f. 24. júní, 1911.
Baldur var sonur Stefáns Guðmundssonar (Stephan G. Stephansson) og konu hans Helgu Jónsdóttur. Hann ólst upp í Garðarbyggð hjá foreldrum sínum og systkinum og flutti með þeim vestur til Alberta árið 1890. Þar hóf hann búskap árið 1905 og stundaði hann til dauðadags. Sigurlína var dóttir Benedikts Jónssonar og Sesselju Pálsdóttur. Faðir Sigurlínu og móðir Baldurs voru systkini, börn Jóns Jónssonar í Mýri í Bárðardal. Hún flutti til Alberta um líkt leyti og Baldur.
