Benedikt Guðnason fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1854. Dáinn í Saskatchewan 31. desember, 1921.
Maki: Margrét Sigríður Sigmundsdóttir f. 20. júlí, 1856 í S. Múlasýslu, d. 1944.
Börn: 1. Valdimar Gunnlaugur (Walter) 2. Einar Vilhjálmur 3. Björgvin 4. Jóhann Benedikt 5. Lilja Emily d. 1931
Benedikt flutti til Ontario í Kanada árið 1878 og fékk vinnu í sögunarmyllu í Parry Sound. Hann nam seinna land í Muskoka héraði, lét það fljótlega af hendi og flutti vestur til Winnipeg. Þar var þá Margrét komin en hún hafði farið vestur þangað með f0reldrum sínum, Sigmundi Steingrímssyni og Jórunni Sigurðardóttur árið 1879. Þau gengu þar í hjónaband og fluttu í Gardarbyggð í N. Dakota. Þaðan fluttu þau norður til Nýja Íslands og námu land nærri Gimli en hurfu síðan þaðan vestur í Lögbergsbyggð í Saskatchewan. Árið 1902 fór svo Benedikt þaðan ásamt Valdimari, syni sínum, í Vallarbyggð þar sem að þeir feðgar námu land um 25 km suður af Churchbridge.
