Benedikt Guðlaugsson

ID: 12603
Fæðingarár : 1814
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1904

Benedikt Guðlaugsson: Fæddur í N. Múlasýslu árið 1814. Dáinn 1904 í Argylebyggð.

Maki: Halldóra Jónsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1816, d. í Nýja Íslandi stuttu eftir komuna þangað.

Börn: 1. Jóhann Baldvin f. 1848 2. Karólína f. 1856 3. Arnfríður Marja f. 1858. Með þeim vestur fóru tvö fósturbörn: 1. Guðný Jónsdóttir f. 1866 2. Jón Guðmundsson f. 1870.

Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba með Jóhanni syni sínum vestur árið 1876. Karólína, dóttir þeirra, og hennar maður, Eyjólfur Jónsson voru samferða. Þau settust að í Nýja Íslandi. Benedikt fygldi syni sínum, Jóhanni til Winnipeg árið 1881 og í Argylebyggð árið 1883.