Benedikt Hjálmarsson

ID: 7238
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Mýrasýsla

Benedikt Hjálmarsson fæddist í Mýrasýslu árið 1856. Dáinn í Vancouver eftir 1930. Benedick Hjalmson vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann fór vestur um haf árið 1901 til Winnipeg í Manitoba. Flutti í Lundarbyggð til systur sinnar, Þuríðar Hjálmarsdóttur og hennar manns, Björns Þorsteinssonar. Bjó hjá þeim og vann hjá bændum. Flutti vestur að hafi og bjó í Vancouver.