
Benedikt Jóhannesson

Sigríður Ásta Sæmundsdóttir
Benedikt Jóhannesson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 10. september, 1847. Dáinn í N. Dakota 25. október, 1916.
Maki: 1) Sigríður Ásta Sæmundsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu, 5. apríl, 1857, d. 1897 2) Bóthildur Guðjónsdóttir f. 1868 í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: Með Sigríði Ástu 1. Ingibjörg Sigríður f. 7. júní, 1887 2. Jónína Snjólaug (Emma) f. 15. apríl, 1889 3. Anna Lilja f. 17. desember, 1890 4. Aldís Elín f. 21. desember, 1892 5. Sæmundur f. 31. ágúst, 1895. Conrad Henry f. 1885 dó sama ár. Með Bóthildi 1. Konráð f. 1900 2. Sigurjón f. 1903 3. Helgi f. 1907. Misstu einn son.
Benedikt fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1874. Flutti í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1879. Sigríður Ásta flutti vestur með foreldrum sínum og systkinum árið 1882. Bóthildur fór einsömul vestur árið 1890.
