Benedikt Jónsson

ID: 13153
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1910

Benedikt Jónsson og Rannveig Þorleifsdóttir Mynd FLNÍ

Benedikt Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1845. Dáinn í Bellingham í Washingtonríki 7. nóvember, 1910. Austmann vestra.

Maki: 1874 Rannveig Þorleifsdóttir f. í N. Múlasýslu 22. nóvember, 1844, d. 25. maí, 1902.

Börn: 1. Hildigerður f. 1875 2. Halldór Þorleifur 3. Jón Ólafur 4. Sigríður Jóhanna. Önnur fjögur börn þeirra dóu ung.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Þau námu land í Víðirbyggð og nefndu það Stararskóg. Árið 1881 fluttu þau að Miklabæ í sömu byggð þar sem þau voru til ársins 1888 en þá fóru þau til Selkirk. Eftir allmörg ár þar fluttu þau vestur að Kyrrahafi og settust að í Bellingham í Washington.